13.9.2017

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana 13. september 2017

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað miðvikudaginn 13. september 2017 kl. 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 18 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 10 mínútur í fyrstu umferð, í annarri og þriðju umferð hafa þingflokkarnir 5 mínútur hver.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:
• Sjálfstæðisflokkur
• Vinstri hreyfingin – grænt framboð
• Píratar
• Framsóknarflokkur
• Viðreisn
• Björt framtíð
• Samfylkingin

Ræðumenn í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í september 2017Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, í annarri umferð og Páll Magnússon, 1. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Steingrímur J. Sigfússon, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Pírata tala Birgitta Jónsdóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 10. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, og Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju.

 

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þingmaður Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri og í þriðju umferð Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra, í annarri Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og í þriðju umferð Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 9. þingmaður Norðausturkjördæmis, í annarri Oddný G. Harðardóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, og Guðjón S. Brjánsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.