Alþjóðastarf forseta Alþingis
Forseti og forsætisnefnd Alþingis hafa umsjón með alþjóðastarfi Alþingis, þar með talið starfi alþjóðanefnda. Jafnframt heyrir þátttaka í ákveðnum viðburðum beint undir forseta Alþingis. Þá ber forseti ábyrgð á samskiptum Alþingis við önnur þjóðþing. Loks berast árlega fjölmörg boð um þátttöku í ráðstefnum og fundum sem ekki falla undir verksvið alþjóðanefnda og ákveður forseti þá hverju sinni hvort og hvernig þátttöku Alþingis skuli háttað.
Fundir forseta þjóðþinga Norðurlandanna og Evrópuráðsríkja
Forsetar þjóðþinga Norðurlanda halda fundi árlega, en forsetar þjóðþinga Evrópuráðsríkja annað hvert ár. Þjóðþingin skiptast á um að halda fundina og eru þeir mikilvægur vettvangur til að ræða starfsemi þinganna, bera saman bækur og skiptast á upplýsingum. Þar eru rædd mál eins og t.d. framkvæmd þingskapa og breytingar á þeim, hlutverk nefnda, fyrirkomulag umræðna í þingum, starfsemi alþjóðasamtaka sem þingin eiga aðild að, aðstoð þeirra við önnur þing o.fl. Forseti Alþingis sækir að jafnaði þessa fundi.
Samskipti við þjóðþing
Samskipti Alþingis við önnur þjóðþing heyra undir forseta Alþingis og forsætisnefnd. Slík samskipti fara fram með gagnkvæmum opinberum heimsóknum. Markmiðið er margþætt. Í slíkum heimsóknum ræða forsetar þjóðþinganna pólitísk málefni, mál sem snerta sérstaklega samskipti þjóðanna auk þess sem utanríkis- og alþjóðamál eru oft ofarlega á baugi. Opinberum heimsóknum er enn fremur ætlað að efla samskipti þinganna og gefa þátttakendum betri innsýn í starfsemi og starfshætti annarra þinga auk þess að vera mikilvægur vettvangur skoðanaskipta. Forseti fer að jafnaði fyrir sendinefndum Alþingis í opinberar heimsóknir og tekur á móti sendinefndum er sækja Alþingi heim. Auk opinberra heimsókna tekur Alþingi á ári hverju á móti einstökum þingmönnum eða þingmannahópum sem koma til Íslands á eigin vegum en óska eftir fundum með alþingismönnum. Forseti Alþingis ákveður fyrirkomulag slíkra heimsókna.
Erlendir tignargestir
Þegar þjóðhöfðingjar og aðrir tignargestir koma í opinberar heimsóknir til Íslands er venja að þeir komi í kurteisisheimsókn í Alþingishúsið og tekur forseti Alþingis á móti þeim og ávarpar í þingsal.
Frá opinberri heimsókn forseta sænska þingsins til Alþingis í febrúar 2018.©Geirix.