Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk
Önnur erindi (1905043)
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
05.11.2019 | 6. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins | Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk Meðlimir Íslandsdeildar ræddu nýliðinn ársfund Vestnorræna ráðsins á Grænlandi og framfylgd ákvarðana sem teknar voru þar. Tvær nýjar ályktanir Vestnorræna ráðsins verða lagðar fram sem þingsályktunartillögur um leið og íslenskur texti þeirra er tilbúinn. |
15.10.2019 | 3. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins | Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk Íslandsdeild fór yfir dagskrá ársfundar Vestnorræna ráðsins í Nuuk 21.-25. október og undirbjó þátttöku sína. |
17.09.2019 | 1. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins | Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk Farið var yfir dagskrá og gögn fyrir komandi ársfund Vestnorræna ráðsins í Nuuk á Grænlandi. Sérstaklega var rætt um ársreikning ráðsins fyrir árið 2018, nýjar reglur um barna- og unglingabókmenntaverðlaun ráðsins og nýjar leiðbeiningar um starf ráðsins í Norðurskautsráði. |
15.05.2019 | 6. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins | Ársfundur Vestnorræna ráðsins í Nuuk Tilkynnt var um væntanlega frestun ársfundar Vestnorræna ráðsins í Nuuk sökum þingkosninga í Færeyjum. |