Heimsókn til Umhverfisstofnunar
(1604148)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
18.04.2016 | 52. fundur fjárlaganefndar | Heimsókn til Umhverfisstofnunar Fjárlaganefnd heimsótti umhverfisstofnun í höfuðstöðvar stofnunarinnar að Suðurlandsbraut 24. Þar tóku á móti nefndarmönnum Kristín Linda Árnadóttir forstjóri, Kristín Kalmansdóttir fjármálastjóri, Ólafur Arnar Jónsson sviðsstjóri, Sigrún Ágústsdóttir sviðsstjóri og Áki Ármann Jónsson sviðsstjóri. Starfsmenn kynntu starfsemi og hlutverk stofnunarinnar og lögðu fram kynningarefni og ársáætlun fyrir árið 2016. Þá svöruðu þeir spurningum frá nefndarmönnum. |