Fjárhagsmálefni Isavia
(1510064)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
09.10.2015 | 9. fundur fjárlaganefndar | Fjárhagsmálefni Isavia Eftirtaldir gestir komu á fund nefndarinnar: Frá Isavia komu Björn Óli Hauksson, Jón Karl Ólafsson og Elín Árnadóttir. Auk þess komu frá innanríkisráðuneyti Pétur U. Fenger og Sigurbergur B. Björnsson og Sigurður H. Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Rætt var um fjárhagsmálefni Isavia, framkvæmdir og viðhald á Keflavíkurflugvelli, viðhald flugvalla um land allt og arðgreiðslur frá fyrirtækinu í ríkissjóð. Fulltrúar fyrirtækisins lögðu fram samninga og gögn sem nefndin hafði áður óskað eftir. |