Árlegur samráðsfundur um stöðu löggæslumála í landinu
(1410273)
Allsherjar- og menntamálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
06.10.2015 | 6. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Árlegur samráðsfundur um stöðu löggæslumála í landinu Á fund nefndarinnar komu Haraldur Jóhannesson og Jón Bjartmarz frá ríkislögreglustjóra, Kjartan Þorkelsson og Úlfar Lúðvíksson frá lögreglustjórafélagi Íslands og Þórunn J. Hafstein og Pétur Fenger frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
15.12.2014 | 28. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar. Nefndin afgreiddi álit sitt. Samþykkt var að senda álitið til Ríkislögreglustjóra, Innanríkisráðuneytisins, Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og Landhelgisgæslunnar. |
11.12.2014 | 26. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar. Nefndin hélt áfram málsmeðferð sinni. |
27.11.2014 | 21. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar. Á fund nefndarinnar kom Snorri Olsen frá Tollstjóra. Fór hann yfir tengsl tollstjóraembættisins við vopnaeign lögreglu og svaraði spurningum nefndarmanna. |
11.11.2014 | 15. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar. Bókun - Vopnakaup lögreglu. Guðbjartur Hannesson, Páll Valur Björnsson, Helgi Hrafn Gunnarsson og Bjarkey Gunnarsdóttir óska eftir því að fært verði til bókar ósk um að unnin verði af Innanríkisráðuneytinu og lögreglu samantekt um feril máls varðandi vopnakaup Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar. |
04.11.2014 | 13. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar. Nefndin samþykkti að trúnaður ríki um reglur um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna, sbr. 2. og 3. mgr. 50. gr. laga um þingsköp Alþingis nr. 55/1991. Á fund nefndarinnar komu Þórunn J. Hafstein, Skúli Þór Gunnsteinsson og Ingilín Kristmannsdóttir frá innanríkisráðuneytinu og fóru þau yfir framangreindar reglur og svöruðu spurningum nefndarmanna. Á fund nefndarinnar komu Georg Lárusson, Jón Gunnarsson, Óli Ásgeir Hermannsson og Svanhildur Sverrisdóttir frá Landhelgisgæslunni. Fóru þeir yfir vopnaeign Landhelgisgæslunnar og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
29.10.2014 | 12. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar - upplýsingafundur. Á fund nefndarinnar komu Georg Lárusson, Óli Ásgeir Hermannson og Svanhildur sverrisdóttir frá Landhelgisgæslunni. Fóru þau yfir vopnaeign Landhelgisgæslunnar og svörðuðu spurningum nefndarmanna. |
22.10.2014 | 10. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Vopnaeign lögreglunnar. Á fund nefndarinnar komu Haraldur Johannessen Ríkislögreglustjóri og Jón F. Bjartmarz yfirlögregluþjónn. Fóru þeir yfir vopnaeign lögreglunnar og svöruðu spurningum nefndarmanna. |