Forsetar þjóðþinga Norðurlanda funda í Kaupmannahöfn
Willum Þór Þórsson, starfandi forseti Alþingis, sækir þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn og fund norræna þingforseta í boði Henrik Dam Kristensen, forseta danska þingsins, 2.–3. nóvember 2021.
Á dagskrá fundar þingforsetanna var samstarf þjóðþinganna á norrænum vettvangi ásamt því sem efst er á baugi í þjóðþingunum. Sérstakur gestur fundarins var Tomasz Grodzki, forseti öldungadeildar pólska þingsins, sem greindi frá stöðu mála í samskiptum Póllands og Hvíta-Rússlands annars vegar og Póllands og ESB hins vegar. Þá kom Bertel Haarder, forseti Norðurlandaráðs, á fund þingforsetanna. Rakti hann áherslur dönsku formennskunnar og gerði grein fyrir fjármálum norræns samstarfs.
Henrik Dam Kristensen, forseti danska þingsins, Eva Kristin Hansen, forseti norska þingsins og Willum Þór Þórsson, starfandi forseti Alþingis.
Á fundarstað í Kristjánsborgarhöll, Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, og Willum Þór Þórsson, starfandi forseti Alþingis, yst til hægri.
Í þingsalnum: Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, í ræðustól og Bertel Haarder, forseti Norðurlandaráðs, í forsetastól.