154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

690. mál
[18:52]
Horfa

Flm. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir hönd atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, er varðar rekstrarleyfisskylda gististarfsemi. Frumvarpið felur í sér breytingar á rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi þess efnis að hún skuli vera í samþykktu atvinnuhúsnæði. Markmiðið með frumvarpinu er að tryggja að starfsemi rekstrarleyfisskyldra gististaða falli að skipulagi sveitarfélags hverju sinni, að álagning skatta verði í samræmi við raunverulega notkun húsnæðis, auk þess að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit, forvarnir og viðbúnað við eldsvoða til verndar lífi og heilsu fólks, eignum og umhverfi.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti og nefndarálitið liggur frammi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta sérstaklega að eitt af meginmarkmiðum frumvarpsins er að tryggja að íbúðarhúsnæði nýtist í þeim tilgangi sem því var ætlað, svo sem til íbúðar fyrir einstaklinga. Mikil umræða hefur verið um húsnæði sem nýtt hefur verið til heimagistingar í atvinnuskyni, þ.e. rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi, sem að öðrum kosti hefði verið nýtt sem hefðbundið íbúðarhúsnæði. Nefndin telur því brýnt að leitast við að létta á þeim mikla skorti á íbúðarhúsnæði sem hefur verið viðvarandi á þéttbýlissvæðum landsins undanfarin misseri og telur að frumvarpið sé mikilvægur liður í því að greiða úr þeim vanda. Við umræður í nefndinni komu fram sjónarmið um að þau rekstrarleyfi sem gefin hafa verið út verði afturkölluð til að tryggja frekar framboð íbúðarhúsnæðis, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Nefndin telur mikilvægt að árétta að frumvarpinu er ekki ætlað að hafa afturvirk áhrif og er það í samræmi við almenn ákvæði stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi og eignarréttindi. Telur nefndin að óvíst verði að teljast út frá dómafordæmum að skilyrði um almannahagsmuni og almannaheill yrðu talin uppfyllt ef slíkri afturvirkni yrði beitt. Þá er ekki hægt að fullyrða að þær íbúðir sem skráðar hafa verið fyrir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi skili sér á markað yrði frumvarpinu ætlað að afturkalla þau leyfi.

Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir um að frumvarpið kynni að leiða til þess að heimagisting í frístundabyggð yrði óheimil. Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem m.a. koma fram í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar og að ekki hafi verið ætlunin að gera heimagistingu í frístundabyggð óheimila. Þá verður einnig heimilt að vera með rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í frístundabyggð að fenginni umsögn viðkomandi sveitarfélags. Nefndin telur að sú breyting sem lögð er til á frumvarpinu sé til þess fallin að girða fyrir slíkan misskilning og taka af allan vafa um að slíkt sé áfram heimilt.

Fyrir nefndinni komu fram ábendingar um að í greinargerð með frumvarpinu væri fjallað um úttektir og brunaeftirlit sem framkvæmt er af slökkviliði. Bent var á að nauðsynlegt væri að skerpa á orðalagi í greinargerð til að fyrirbyggja misskilning. Nefndin fjallar um það nánar í áliti sínu.

Nefndin leggur til breytingu á frumvarpinu þess efnis að það taki eingöngu til þéttbýlis. Með þeim hætti má tryggja að gististarfsemi sem starfrækt hefur verið utan þéttbýliskjarna á landsbyggðinni, sem verið hefur mikil búbót fyrir sveitir landsins, fái að starfa áfram óbreytt.

Nefndin telur að frumvarpið sé brýnt og að markmið þess sé gott, en telur þó ljóst að sá húsnæðisvandi sem leitast er við að greiða úr með frumvarpinu eigi ekki við utan þéttbýlissvæða.

Nefndin leggur til að notast verði við skilgreiningu 28. töluliðar 2. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010, þ.e. að þéttbýli sé:

„Þyrping húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjarlægð milli húsa fer að jafnaði ekki yfir 200 metra. Afmarka má þéttbýli með öðrum hætti í aðalskipulagi sveitarfélags.“

Með því að notast við þá skilgreiningu má jafnframt tryggja aukið sjálfsákvörðunarvald sveitarfélaga þegar kemur að ákvörðunartöku um starfsemi rekstrarleyfisskyldra gististaða. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndarálitinu.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Þórarinn Ingi Pétursson, Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Gísli Rafn Ólafsson, Hanna Katrín Friðriksson, Orri Páll Jóhannsson, Óli Björn Kárason og Tómas A. Tómasson. Jóhann Páll Jóhannsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur álitinu.