Ferill 479. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Nr. 20/144.
Þingskjal 1607 — 479. mál.
Þingsályktun
um samstarf við Færeyjar og Grænland um leiðir til að draga úr útblæstri brennisteins frá skipum.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að efna til samstarfs við stjórnvöld Færeyja og Grænlands um leiðir til að draga úr útblæstri brennisteins frá skipum í þeim tilfellum þar sem mengunina má rekja til notkunar svartolíu. Því verði beint til landanna að þróa og koma í framkvæmd áætlunum fyrir skilvirka og umhverfisvæna orkunotkun með því að krefjast þess að notað sé eldsneyti sem mengar minna og tækjabúnaður sem fjarlægir brennisteinsagnir úr eldsneyti skipa sem stunda veiðar og fraktflutninga.
Samþykkt á Alþingi 2. júlí 2015.