Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
109. löggjafarþing 1986–87.
Nr. 6/109.
Þskj. 681 — 6. mál.
Þingsályktun
um rannsóknir á botnlægum tegundum á grunnsævi.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir að fram fari skipulegar rannsóknir á botnlægum tegundum á grunnslóð og kortlagning slíkra miða til að auðvelda veiðar, ekki síst innfjarða. Jafnframt verði athuguð hagkvæmni á veiði botnlægra tegunda.
Gerð verði áætlun um þetta verkefni með það í huga að ljúka því á næstu fimm árum og til þess verði veitt sérstakt fjármagn úr ríkissjóði.
Samþykkt á Alþingi 24. febrúar 1987.